YOOtheme
Lúðrasveit Tónlistarskóla Grundarfjarðar
Miðvikudagur, 03 Desember 2008 22:07

Lúðrasveit Tónlistarskóla Grundarfjarðar var fyrst stofnuð haustið 1985 og starfaði þá í u.þ.b. 3 ár. Nokkuð hlé varð á starfi sveitarinnar eftir það en hún var síðan endurvakin árið 1995 og starfaði þá í um 2 ár. Eftir u.þ.b. 11 ára hlé, eða í janúar 2008 var hún endurvakin enn á ný af núverandi stjórnanda og voru þá 13 börn sem hófu starfið undir hans stjórn.
Nú þegar þetta er ritað, í desember 2008, eru meðlimir sveitarinnar 18 talsins og hafa þeir verið duglegir við að koma fram í vetur og spila fyrir bæjarbúa. Markmiðið er að fjölga meðlimum Lúðrasveitarinnar enn frekar á komandi misserum.
Lúðrasveitir hafa löngum verið taldar félagslega þroskandi vettvangur fyrir börn, þar sem áhersla er lögð á samspil og samheldni nemenda, enda er slagorð sveitarinnar „Ein Lúðrasveit, Einn hópur“. Með þátttöku í lúðrasveit öðlast börnin mikla reynslu og með slíku starfi fá þau t.a.m. þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum, öðlast aukið sjálfsöryggi og aga.
Æfingabúðir eru reglulegur þáttur í starfi lúðrasveitarinnar, eða einu sinni á önn, sem eru bæði staðbundnar en einnig er farið út fyrir heimabæinn og æft annarsstaðar. Svo eru ferðalög tíð í starfsumhverfi skólalúðrasveitar og má þar nefna Landsmót Skólalúðrasveita, tónleikaferðalög og heimsóknir til annarra lúðrasveita.

Hljómsveitarstjóri: Baldur Orri Rafnsson