| Gítarkennari |
| Mánudagur, 05 Október 2009 21:33 |
|
Gítarkennari Davíð Sigurgeirsson gítarkennari hefur verið ráðinn til starfa við tónlistarskólann og mun hann hefja störf miðvikudaginn 07.okt. Við bjóðum Davíð velkominn til starfa. Nú hafa allar stöður verið mannaðar í tónlistarskólanum. Þeir sem bæst hafa í hóp tónlistarkennara eru: Linda María Nielsen sem kennir tónfræði og píanó. Sonja Karen Marinósdóttir sem verkstýrir og hefur yfirumsjón með samstarfsverkefni tónlistarskólans, grunnskólans og fjölbrautaskólans á sviði tónlistar og leiklistar. Davíð Sigurgeirsson sem kennir á gítara auk þess sem hann mun stjórna Junior bandi skólans og styðja við skólahljómsveitina. Og svo við hin gömlu.....: Alexandra tónlistarkennari : þverflauta, klarínett og saxafónn. Baldur tónlistarkennari: Trommur, Kornett, Trompet, Básúna, Horn, hljómsveitarstjóri lúðrasveitarinnar. Þórður skólastjóri: Píanó, hljómborð, Bassi, útsetningar/hljómsveitarstjóri skólahljómsveitarinnar og tónlistarstjóri í fyrirhuguðu samstarfsverkefni skólanna þriggja sem að ofan greinir. |